Nú á haustmánuðum hefur mikið magn óskilamuna orðið eftir í Þorpinu.
Verður það að teljast eðlilegur þáttur fjölnota húsnæðis - en við viljum endilega koma sem flestu í réttmætar hendur.
Við hvetjum forsjáraðila, börn og ungmenni sem sakna einhvers að kíkja endilega í óskilamunakassana okkar.
Kassarnir eru staðsettir á stigapalli 2.hæðar við lyftuna.